Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands
Fréttir Greinar & pistlar Fundargerðir Myndaalbúm Tenglar Aðildarumsókn Ráðgjöf & þjónusta
Senda á fésbók

Stjórnarfundur 18. apríl 2011
18 apríl 2011 12:00

Stjórnarfundur 18. apríl 2011

Stjórnarfundur MNÍ
Dags.: 18. apríl 2011
Staðsetning: Heiðargerði 4, Reykjavík
Fundarefni:
1. Samþykkt síðustu fundargerðar
2. Skiladagur nefnda
3. Afmælishátíð
4. Aðalfundur
5. Önnur mál
6. Næsti fundur

Viðstaddir eru:  Herdís M. Guðjónsdóttir formaður, Sigríður Ásta Guðjónsdóttir gjaldkeri og Ragnheiður Guðjónsdóttir ritari, Guðný Jónsdóttir og Helen Gray.


Efni:


1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð samþykkt


2. Skiladagur nefnda

Skiladagur nefna var haldin 30. mars og tókst vel. Vel gekk að manna nefndir að þessu sinni.
 
3. Afmælishátíð

Ákveðið hefur verið að halda 30 ára afmælishátíð MNÍ á Akureyri 26. ágúst 2011. Stefnt er að halda ráðstefnu um daginn og enda daginn með hátíðarkvöldverði. Nefnd fyrir norðan sér um undirbúning í samráði við formann og stjórn ef þurfa þykir.

4. Aðalfundur

Ákveðið hefur verið að halda aðalfund 17. maí 2011. Helen tekur að sér að athuga með sama sal og síðast þ.e. 13. hæðin á Grand Hótel. Formaður mun senda út fundarboð þegar að staðsetning er komin er á hreint.

5. Önnur mál

Heyrst hefur að Matís stefni á nýtt matvælavísindanám. Formaður mun óska eftir fundi með forstjóra Matís vegna þessara sögusagna.
Stjórn mun skoða og yfirfara handbók MNÍ og athuga hvort að einhverjar villur eða breytingar hafi orðið á undanförum árum.

6. Næsti fundur

Næsti fundur er aðalfundur en næsti stjórnarfundur verður ákveðin eftir hann. Formaður boðar í tölvupósti þegar að nær dregur.





MNÍ | Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands | Pósthólf 8941 | 128 Reykjavík | Sími 863 6681 | Netfang: mni[at]mni.is
Vefur MNÍ byggir á D10 Vefbúnaði. Íslenskt hugvit fyrir íslensk félagasamtök.