Önnur tegund af hveiti sem mikið hefur verið á heilsuvörumarkaðnum síðustu ár er kölluð í daglegu tali spelt og nefnist Triticum spelta í
flokkunarkerfinu. Þegar spelt kom á markaðinn var fullyrt að þeir sem
hefðu ofnæmi fyrir hveiti og einnig þeir sem eru með glútenóþol (celiac
sjúkdóm) myndu þola spelt. Einstaklingar með glútenóþol, sem prófuðu
þessa vöru, komust fljótt að því að þessi fullyrðing stóðst engan
veginn.
Einstaklingar með fæðuofnæmi þola ekki ákveðnar
próteinsameindir í matnum og á það einnig við um þá sem eru með
glútenóþol. Munur getur verið á innihaldi einstakra próteina í
mismunandi tegundum matvæla eins og t.d. hveitis. Áður en hægt er að
fullyrða að matvara valdi síður ofnæmi en önnur svipuð matvara þurfa að
liggja fyrir rannsóknir um hvaða próteinsameindir valda ofnæmi og magn
þeirra í mismunandi tegundum. Rannsóknir á venjulegu hveiti og spelti
sýna að þau innihalda svipuð prótein og rannsóknir á einstaklingum með
glútenóþol sýna einnig að þeir þola hvorki hveiti né spelt. Samkvæmt
reglugerð um merkingu matvæla á að merkja skýrt þær fæðutegundir sem
geta valdið fæðuofnæmi. Þar á meðal er hveiti. Þegar hveiti er merkt sem
spelt á innihaldslýsingu getur það villt um fyrir neytendum sem hafa
ofnæmi fyrir hveiti. Þetta þurfa matvælaframleiðendur og
eftirlitsaðilar að hafa í huga.
Þegar spelt kom fyrst á markað
var eingöngu boðið upp á gróft spelt sem samsvarar heilhveiti. Því má
segja að þeir sem kusu brauð og annan bakstur úr speltmjöli borðuðu oft
grófari brauð en ella og þar með trefjaríkari. Í dag er aftur á móti
hægt að fá bæði gróf speltbrauð og brauð bökuð með hvítu speltmjöli.
Þeir sem velja speltbrauð í dag fá því ekki alltaf gróf brauð eins og
fyrst eftir að þessi mjöltegund varð vinsæl. Fjölbreytni í fæðuvali er
forsenda þess að við fáum í okkur þau næringarefni sem við þurfum á að
halda. Oft mætti fólk hafa þetta í huga þegar valið stendur um
mismunandi brauðtegundir. Best er að velja grófari tegundirnar en einnig
eykur það fjölbreytnina að velja brauð sem bökuð eru með öðru mjöli
eins og rúgi, höfrum og byggi.
Kolbrún Einarsdóttir
Næringarráðgjafi
Fréttablaðið, bls 22.
1. maí 2008 - 118. tölublað - 8. árgangur