Samtök iðnaðarins gáfu verðlaunagripinn, sem er hannaður og framleiddur hjá Gleri í Bergvík
Fjöreggsnefndin valdi fimm tilnefningar til Fjöreggsins sem þóttu skara
fram úr og voru þær lagðar fyrir dómnefnd sem í sátu fimm valinkunnir
einstaklingar og fræðimenn. Í ár eru þær: Beint frá býli ? Félag
heimavinnsluaðila, Mjólkursamsalan, Ólafur Eggertsson kornbóndi á
Þorvaldseyri, Sölufélag garðyrkjumanna og Síldarvinnslan Neskaupstað.
Hlédís Sveinsdóttir, formaður Beint frá býli tók við verðlaununum en í
umsögn dómnefndar segir: ?Vinnsla og sala á matvælum beint frá býli til
neytenda miðar að því að auka sóknarfæri til fjölbreyttari og vaxandi
heimavinnslu þar sem öryggi og gæði framleiðslunnar eru höfð að
leiðarljósi. Heimavinnsla tengist mjög ferðaþjónustu og kröfum neytenda
um fjölbreyttara vöruúrval og nýja þjónustu.?
Beint frá býli var með kynningu á nokkrum af þeim vörum sem eru í boði
frá félagsmönnum. Boðið var uppá nautakjöt frá Hálsi í Kjós, sultur
frá Örnólfsdal í Borgarfirði, rjómaís frá Holtseli í Eyjafjarðarsveit,
tvíreykt sauðahangikjöt frá Hellu í Mývatnssveit og lífrænt ræktað
bankabygg og grænmeti frá Vallanesi á Fljótsdalshéraði. Og er hægt að
segja með sanni að þessar vörur hafi vakið verðskuldaða athygli.
Einnig voru aðrir aðilar sem voru tilnefndir með kynningu á sínum vörum